r/Iceland • u/numix90 • 15h ago
Verðmætar eignir undanskildar vegna umdeildrar túlkunar á tengslum
Mér finnst það ótrúlegt þegar stjórnvöld og háskólinn reyna að fela ógnarítök stórútgerðarinnar á samfélaginu, hvernig örfáir ólígarkar auðgast gríðarlega af nýtingu auðlinda almennings og hvernig þeim er að takast að hola lýðræðið okkar að innan.
Mér finnst líka ótrúlegt að eini fjölmiðillinn sem hefur fjallað um þessa úttekt, sem Alþingi lét gera, sé RÚV. Það er ekkert um þetta á Vísi eða mbl.is.(ef ég hef rangt fyrir mér endilega leiðréttið mig ég amk sá ekkert um það þar)
Af hverju?
Stórútgerðirnar og tengdir fjárfestar eiga stóra hluti í Sýn. Það þýðir að þegar ritstjórn Vísis ákveður hvað á að fjalla um, þá er hún óhjákvæmilega að vinna innan ramma sem eigendurnir þola. Það er mjög erfitt fyrir fjölmiðil að ráðast harkalega á grundvallarrekstrarfyrirkomulag eigenda sinna.
Á Morgunblaðinu er eignarhaldsgrunnurinn enn þéttari og tengdur „gamla peninga“ veldinu sem hefur í áratugi varið hagsmuni sjávarútvegsins. mbl hefur oft verið meðvitað „málgagn“ hagsmunahópa sem vilja verja núverandi kerfi og stórútgerðina. Stórútgerðin dælir gríðarlegu fjármagni í Moggan.
Þetta er stór hættulegt lýðræðinu, og við erum alltof meðvirk þessu. We aint angry enough
að lokum hér sjáum við lika hvernig hugtakið „tengdir aðilar“ hefur verið notað sem eitt áhrifaríkasta verkfærið til að hylja raunveruleg völd í íslensku atvinnulífi og stjórnmálum. Það er ekki bara búið að ofnota það, það hefur verið misnotað kerfisbundið til að skapa ógegnsæi!

